Velkomin í

logo

Við erum Flæði og markmið okkar er að auka vellíðan og heilsu með hjálp heilunarmáttar vatns. Ekki hika við að hafa samband við okkur hér fyrir neðan ef þú hefur einhverjar spurningar.
 

Meðferðir

Vatnsmeðferð

alt="OlgaHörn"
Hóptími

60 MÍNÚTUR - 7.500 kr

Vatnsmeðferðir eru veittar bæði einstaklingum og hópum (allt að 12 manns). Innifalið í slíkri meðferð er stuðningsbúnaður til að búa um flotþegann í þyngdarleysi, augnhvílur sem eru notaðar til að hvíla ytri skynfærin. Meðferðin sjálf samanstendur af mjúkum slakandi hreyfingum, nuddi og sjálfstæðu floti og er veitt af fagfólki.

Tónheilun & Kakó - Hóptími

60 MÍNÚTUR - 9.500 kr

Eru tímar sem byggjast á hefðbundinni flotmeðferð, þar sem allir fá besta mögulega búnað og tilheryandi meðhöndlun fagaðila, samhliða tónheilun og lúxus kakói frá Gvatemala.

Fyrir pör

60 MÍNÚTUR - 14.900 kr á mann

Flotmeðferð þar sem pör geta komið saman og notið sértækari og dýpri meðhöndlunar í vatninu.

Einstaklingsmeðferð

60 MÍNÚTUR - 18.900 kr

Einstaklingsmeðferðin er flotmeðferð með nuddi og flæðandi hreyfingum, hentar bæði einstaklingum sem vilja njóta dýpri og lengri meðhöndlunar á meðan flottíma stendir, en einnig þeim sem þarfnast meiri stuðnings og aðhlynningu en hægt er að veita í hóptímum.

Aðrar vatnsmeðferðir

alt=""
Nudd í vatni

30 MÍNÚTUR - 9.500 kr

Nudd í vatni er 30 mínútna einstaklingsmeðferð þar sem lögð er áhersla og slökun í vatninu, samhliða losun um spennu í vöðva- og bandvef. Sú meðferðin er alltaf veitt af lærðum heilsunuddara með reynslu af vinnu í vatni.

Jahara

60 MÍNÚTUR - 17.000 kr

Jahara er sérhæfð einstaklingsmeðferð í vatni þar sem unnið er með bæði stoð- og taugakerfið í samræmi við aukna hreyfigetu líkamans í vatninu. Aðferðin beinist að því að upplifa samlögun við vatnið á meðan meðferð stendur.

Watsu

60 MÍNÚTUR - 10.000 kr

Watsu er sérhæfð vatnsmeðferð með röð samfeldra mjúkra hreyfinga sem opna og mýkja líkamann og taugakerfið. Við bjóðum uppá slíka meðferð af Watsu iðkenda sem hefur lært öll þrjú stig Watsu meðferðar. Þetta er klukkutíma meðferð sem er unnið með hreyfingar sem opna og mýkja líkamann á ýmsan hátt.

Ummæli

alt="Karenhenny"

Flot er eitt af því sem hjálpar mér hvað mest að slaka algjörlega á hverri einustu taugafrumu 💙 Yndislegt að njóta í vatninu og svo er “flotvíman” svo góð lengi á eftir 💙 Ég tala nú ekki um fá góðu orkuna frá Olgu og Aroni - lang best 💙

Karen Henny

alt="HildurGylfadóttir"

Kyrrð, öryggi, vellíðan, endurnærandi og dásamleg upplifun er tilfinning sem umvefur mann í flotmeðferð hjá Olgu & Aroni. Mér fannst ég fljóta í þyngdarleysi, líkaminn algjörlega laus við spennu og þegar þau nudda og hreyfa líkamann með mjúkum hreyfingum í vatninu fer maður enn dýpra inn í djúpslökun. Himnesk flotmeðferð. ❤️

Hildur Gylfadóttir

alt="BjarturGuðmundsson"

Frábær upplifun sem beygir skynjun á tíma og rúmi! Ég fór til Ólafs Aron Sveinssonar og get ekki annað en mælt með þessari upplifun. Þvílík slökun og heilandi innra ferðalag undir frábærri handleiðslu. Svo var þetta líka rosalega gaman. 😊

Bjartur Guðmundsson

alt="TobiasKlose"

I went floating with Olga and Aron the other day and it was absolutely wonderful. The process is easy, they have all the gear and explain everything nicely and calmly. The floating experience itself surprised me as I went really deep into a totally relaxed meditative state. Floating absolutely weightlessly and effortlessly, surrounded by the warm water, carrying me. Soft music underneath the water surface and then the gentle movements and massage from the facilitators was an amazing experience. I invited my wife for a trip into the unknown with me and she loved it so much that we went a second time just three weeks later.

Tobias Klose

alt="EllaHrönn"

Frábært að upplifa og njóta þess að vera í kyrrðar og slökunarfloti hjá Olgu Hörn og Ólafi Aroni. Upplifa kyrrð, þyngdarleysi og finna hvernig losnar um spennu í líkamanum þegar maður fær líka léttar nuddstrokur og teygjur með. Mæli eindregið með og mun fara aftur. ⭐

Ella Hrönn